domingo, 11 de septiembre de 2005

kósý OC kvöld

Ég vaknaði í morgun ansi hress svo vonandi er ég bara laus við alla flensu :D Það var æðislegt hjá okkur Orra í gær :D Nenntum reyndar ekki að elda heldur pöntuðum á Nings :Þ Ég borðaði svoooo mikið yfir mig ! Ég þurfti að panta stór box af báðum réttunum svo þetta yrði nóg til að fá heimsent (já við vorum of löt til að keyra upp á Suðurlandsbraut :Þ) en svo gleymdi ég að ég hefði pantað mér stórann rétt og borðaði hann ALLAN + FRANSKAR ! Ég var bókstaflega afvelta !!!! OC, þriðja serían byrjar vel :Þ eða ekki þannig að söguþráðurinn sé endilega allur á happynótum eða þannig heldur held ég bara að þetta verði hin fínasta sería :Þ Ohhhh ég verð að kynnast e-m sem er svona mikið OC fan eins og ég og er að horfa á þetta !!! Óþolandi að þurfa að bíða í heila viku eftir næsta þætti, eða næstum. Þetta er sýnt á fimmtudögum úti, þannig það eru bara 5 dagar í næsta þátt :Þ Jæja nóg af ruglinu, í dag verður það bara læra læra læra til að vinna upp tapaðann tíma yfir vikuna :S Þetta er sko alveg slatti ! Það er bara í háskólanum þar sem maður getur lent alveg helling á eftir eftir bara fyrstu vikuna ! en þetta er þó mun skárra í spænskunni heldur en annars staðar, ég er bara einfaldlega ekki með svo þykkar bækur að það sé hægt að setja fyrir e-r 100 bls :) Eníhú ..... bæbæ

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Ef við tökum reglulega OC 2. sería maraþon þá ætti ég að vera reddí fyrir 3. seríu fljótlega ;) Það ætti ekki að vera mikið mál að taka frá 1 kvöld í viku eða góðan fös. lau. eða sunnudag fyrir nokkra þætti.

Íris dijo...

hehe já hvað segiru ertu laus á miðvikudagskvöldið? Orri er þá að vinna svo tölvan er laus :Þ