lunes, 26 de septiembre de 2005

jummi jummí

æ sökkí, í fyrsta sinn frá því ég færði mig yfir á blogspot þá kom ekki færslan sem að ég skrifaði ... ég veit reyndar afhverju, það var of langt frá því ég opnaði gluggann þangað til ég skrifaði bloggið og vistaði það svo ... þannig ég var búin að loggast út af :S En allaveganna, ég er búin að vera með hausverk í 3 daga !! Eða alveg frá því ég vaknaði á laugardagsnóttina alveg að deyja :S Það er reyndar líka mér að kenna (eins og bloggið), þetta er bara vöðvabólga ! Svo núna er ég búin að setja tölvuna mína og allt stöffið í bakpoka ! í staðinn fyrir að vera með þetta allt á annarri öxlinni :S En annað mál .... Ég og Orri erum komin með bústað í október :D ohh það verður æði að komast aðeins úr bænum :Þ Ég ætlaði að leigja bústað í gegnum VR en það gekk illa upp útaf vinnunni þannig að þær uppi í vinnu bentu mér á þennan stað ----> Gljúfur og þau áttu laust fyrir okkur :Þ og ekki bara það heldur gistum við þarna frá fimmtudegi til sunnudags en borgum bara fyrir 2 nætur :D Semsagt konan sem á þetta þekkir Gunni, mömmu Lovísu sem ég vinn hjá :Þ Já ég elska vinnuna mína :Þ En vá ég get bara ekki beðið eftir því að fara :D Ég er líka ógeðslega dugleg þessa dagana, fór að æfa í gær, mmmm það er svo gott. Manni líður svo vel eftir á, það er hreint út sagt undarlegt hvað maður er latur við það að koma sér af stað :S Svo er ég líka í nammibanni :S ég er í smá átaki í matarmálunum :S ég lifi bara á sykri og er eiginlega bara hálfgerður gikkur þegar kemur að mat. Þannig ég fór að kaupa í matinn í gær og keypti helling af mat sem MÉR finnst góður :Þ Þannig ég borða ekki bara hunangscherrios í öll mál !! Ég er á Hlöðunni núna að læra fyrir fyrsta prófið í spænsku ! Spænsk málfræði :S Vona að mér eigi eftir að ganga vel :Þ svolítið stressandi að fara í próf í spænsku því ég hef aldrei gert það áður. Ég hef bara lærði spænsku ekki svona af bókunum þannig að þetta eru svolítil viðbrigði fyirr mig :Þ Í tíma á fimmtudaginn þá vorum við að ræða spænska matargerð og ég var þá að segja frá mat sem er eldaður í Venezuela ... Það var bara hellings vesen því að þetta eru bara ekkert sömu orðin, það bara skyldi mig enginn :S af því það eru notuð allt önnur orð yfir hlutina á Spáni :S Ekki bara það heldur kann ég ekki heldur að beygja sagnir í Vosotros (þið) af því það er ekki notað í Venezuela :S já þetta er undarleg staða sem ég er í í dag :Þ Aníveis þá ætla ég bara að hafa kósý kvöld heima í kvöld. Við Orri ætlum að taka til :S Það hefur ekki verið vaskað upp í þónokkra daga því Orri var veikur :Þ og það er mannhæðar hátt fjall af diskum og stöffi inn í eldhúsi :Þ Svo er líka alveg kominn tími á smá tuskuaction hér og þar í íbúðinni :Þ Svo ætlum við að vera dugleg í kvöld og elda :Þ Fá okkur kjúlla og svo ætla ég að chilla ein í kvöld og horfa á Friends því Orri er að fara eitthvert út :Þ

6 comentarios:

Anónimo dijo...

Þú ert svo dugleg dúllan mín, og komin í nammibann, það er það erfiðasta sem ég geri, finnst alltaf jafn leiðinlegt að falla aftur, en hvað á maður að gera, það er jól og páskar og allt þetta sem að verður til þess að maður fellur aftur :o, Ég vona að þér gangi vel í prófinu í spænsku, miss you hon :o) Bestu kveðjur.

Íris dijo...

hehe takk :) enn sem komið er eru bara liðnir 2 dagar ! ég ætla samt að hafa smá nammidag á laugardaginn :Þ bara smá :D

Anónimo dijo...

AÐ mæinu mati er líka betra að hafa frekar einn nammidag og limmit á því hvað má borða á þessum nammidegi frekar en að fara í algjört bann. Minni líkur á að maður falli, plús það að ef maður fellur á algjöru nammibanni leiðir það yfirleitt til algjörs nammi sukks og brjálæðis þannig að ekkert græðist.

Anónimo dijo...
Este blog ha sido eliminado por un administrador de blog.
Anónimo dijo...

AÐ mæinu mati er líka betra að hafa frekar einn nammidag og limmit á því hvað má borða á þessum nammidegi frekar en að fara í algjört bann. Minni líkur á að maður falli, plús það að ef maður fellur á algjöru nammibanni leiðir það yfirleitt til algjörs nammi sukks og brjálæðis þannig að ekkert græðist.

Íris dijo...

ahh já alveg sammála :D