domingo, 18 de septiembre de 2005
I've been klukked
Ég hef verið klukkuð ! sem þýðir víst að ég þarf að deila hérna með ykkur 5 ó(merkilegar) staðreyndir um sjálfa mig :)
1.
Ég heiti Íris .... Af hverju? Ég sá það nú einhvers staðar í svona bók sem foreldrar skrifa í um börnin sína að ég hefði bara verið skírð út í loftið. Ég man að ég varð mjög móðguð af því María er skírð í höfuðið á ömmu :Þ en ég er búin að jafna mig núna :D Það eru líka alveg ógnarmargar Írisar fæddar á þessum tíma, mamma og pabbi neita samt alveg fyrir það að hafa verið að fylgja tískusveiflum, þau hafi bara ekki fattað þetta fyrr en eftir á. Ég var þó það heppin að fá ekkert seinna nafn svo ég heiti BARA Íris (ég hef verið lesin svona upp í tímum !)
2.
Ég þjáist af röskun :Þ já örugglega eitthvað borderline dæmi. Ég er skipulagsbrjáluð ! Ég er með súpersystem á öllum fjandanum, glósunum mínum, vöktunum, stundaskrám, bókhaldi og svo framvegis framvegis framvegis. Ég tek mig meira segja til og skipulegg fyrir aðra, bara af því mér finnst það svo gaman. Ég skrifa niður lista oft á dag yfir hitt og þetta og skipulegg þá. Þetta lýsir sér líka í því að ég verð óróleg þegar ég hef ekki tölvuna mína við hendina eða dagbókinja :Þ Samanber það þegar tölvan mín var í viðgerð í 5 vikur í sumar ! Það ætlaði alveg að fara með mig :Þ
3.
Mér finnst gos, skyndibitamatur, flest nammi, snakk og kjöt vont. Ég elska hins vegar súkkulaði meira en allt annað. Ætli þetta sé fíkn. Mér finnst vatn það besta sem ég drekk og grænmeti og grænmetisréttir það besta sem ég borða .... Já ég kenni súkkulaðinu algjörlega um aukakílóin :Þ
4.
Ég er með fóbíu fyrir hurðahúnum (sérstaklega á almenningsklósettum) og stigahandriðum. Þetta þróðaði ég algjörlega með mér úti í Venezuela þar sem hreinlætið var ekki alltaf það besta :Þ Þannig ég reyni alltaf að sleppa því að koma við handrið þegar ég labba upp og niður tröppur. Ég reyni svo að sleppa því að koma við hurðarhúna á klósettum með öllum mögulegum aðferðum en sú sem hefur virkað best er að setja höndina inn í ermina og opna hana þannig :Þ Sko ef maður er búin að þvo sér um hendur og tekur síðan í hurðarhúninn þá fær maður á sig alla sýklana frá þeim sem að hafa ekki þvegið sér um hendurnar því jú ALLIR þurfa að taka í húninn !
5.
Ég fæ að heyra það að sé svolítið frek, ógurlega tilfinningasöm og get grenjað yfir öllum fjandanum, merkilegu og ómerkilegu, sorglegu og skemmtilegu. Ég held ég mixi bara saman tilfinningunum og endi þannig með því að sýna undarleg viðbrögð við ýmsum hlutum :Þ
Jæja þá eruð þið fróðari um mig :Þ Ég ætla næst að klukka hana Bekku, Selmu og svo Evu sálfræðiskvísu ef hún skyldi kíkja hérna inn :Þ
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

5 comentarios:
Hihihihihi ekki vissi ég um öfundsýkina þína á fyrri árum:P Gott að þú sért búin að jafna þig;)
Hey það var búið að klukka mig áður en þú klukkaðir mig og ég var búin að ákveða að klukka þig!
ohhh
He he snilld :o) Ég lofa færslu í dag, 5 mjög áhugaverðum staðreyndum um mig :o)
hahaha já það er eins gott :Þ
OC kvöld á morgun :) Ég mæti að sjálfsögðu! Var bara ekki viss hvort ég þyrfti að læra eða ekki, en því er sem sagt öllu reddað :)
Publicar un comentario