- Í öllum lögreglurannsóknum þá er nauðsynlegt að fara á allavega einn strippstað.
- Þegar þeir eru einir finnst öllum útlendingum best að tala ensku við hvern annan
- Öll rúm eru með sértöku L laga laki sem ná upp undir armakrikann á konunni en aðeins að mittishæð á manninum sem liggur við hlið hennar.
- Lögreglustjórinn rekur oftast aðalrannsóknarlögreglumanninn eða gefur honum 48 tíma frest til að leysa málið.
- Allir innkaupapokar innihalda að minnsta kosti eitt stykki snittubrauð
- Það er ekkert mál fyrir hvern sem er að lenda flugvél svo lengi sem það er einhver sem geti leiðbeint honum hvernig eigi að gera það
- Loftræstikerfið í hvaða byggingu sem er er tilvalinn staður til að fela sig og engin mun nokkurn tíman leita þín þar. Þú getur svo farið um alla bygginguna án þess að nokkur taki eftir því
- Lögregludeildirnar setja menn sína í persónuleika próf til þess að geta sett þá með félaga sem er akkúrat andstæða þeirra.
- það er hægt að sjá Eiffelturnin úr hvað glugga sem er í París
- allar tímasprengjur eru með risa stórum skjá þar sem tölurnar telja niður í áberandi rauðum stöfum. svo þú getir vitað hvenær nákvæmlega þær munu springa
- það er nánast bókað mál þú munt vinna hvaða bardaga sem er nema þú sért búin að sýna einhverjum myndir af ástvinum þínum
- ef þig vantar að þykjast vera þýskur hermaður þarft þún ekki að tala þýsku- það er nóg að tala með þýskum hreim
- karlmaður mun ekki sýna nein sársaukamerki meðan að það er verið að berja hann í klessu en kippist til af sársauka þegar kona hreinsar sár hans
- þegar verið er að borga leigubíl þá áttu aldrei að líta í veskið þitt. kipptu einhverjum seðli út. það er pottþétt nóg fyrir farinu.
- Eldhús eru ekki með kveikjan og slökkva tökkum. þegar þú kemur inn í eldhús að nóttu til opnaðu þá eldhúshurðina og notaðu það ljós í staðin
- Ef að konur sofa í draugahúsi þá fara þær alltaf að skoða grunsamleg hljóð í flottustu og mest sexy undirfötunum sínum.
- mömmur elda nánast alltaf stóran mikin morgunmat alla morgna þó að fjölskylda þeirra hafa yfirleitt aldrei tíma til að borða hann
- bíll sem lendir í árekstri springur oftast í loft upp eða það kviknar allavega í honum
- öll símanúmer í bandaríkjunum byrja á 555
- ein eldspýta gefur frá sér nóg ljós til að lýsa upp heilan íþróttavöll
- Allir þeir sem vakna upp af martröð setjast strax upp beint í upprétta stellingu og mása
- það þarf ekki að segja hæ og bæ í upphafi og enda hvers símtals.
- jafnvel þegar keyrður er beinn vegur þá er það nauðsynlegt að hreyfa stýrið stanslaust aðeins til hægtri og vinstri
- það er alltaf hægt að finna stæði beint fyrir utan staðinn sem þig vantar að komast á
- það skiptir ekki máli þó að þú ert að berjast við marga í bardagaíþróttum- óvinir þínir bíða alltaf þolinmóðir og ráðast á þig bara einn og einn í einu og hinir dansa í kringum þig á meðan
- þegar manneskja er rotuð hlýtur hún aldrei varanlegan skaða af
- enginn sem tekur þátt í bílaeltingaleik, flugráni, sprengingu eða árás frá geimverum fer í sjokk og þarf á áfallahjálp að halda
- þegar búið er að setja á varalit helst hann þar alltaf... meira að segja þegar kafað er
- þú finnur alltaf keðju sög ef þig vantar slíka
- alla lása er hægt að opna með kreditkorti eða bréfaklemmu á nokkrum sekúndum... nema það sé hurð inni brennandi byggingu með barn lokað inni
viernes, 23 de septiembre de 2005
Hlutir sem við myndum aldrei vita ef ekki væri fyrir amerískar bíómyndir
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
hahaha snilld ... Selma
hahahahahahaha alveg merkilegar :o)
Og fólk kann líka alltaf símanúmer á ótrúlegustu stöðum utan af og þarf aldrei að flétta upp í símasránni ;)
Publicar un comentario