lunes, 5 de septiembre de 2005
helv*****, djöf******, fjan****
Djöfull er ég ógeðslega reið og fúl núna :( Það var nýnemafundur í spænskunni síðasta föstudag og ég vissi ekki af honum af því að tilkynningin var bara inn á vef hugvísindadeildar og ég hef bara ekkert kíkt á hann !!!! Djöfull er þetta fúlt :C
Svo var líka fundur og partý fyrir tengiliði og skiptinemana á föstudaginn. Emailið var sent út kl. 18 á föstudaginn og ég sá það ekki fyrr en að verða 11 um kvöldið og þá var ég bara að fara að sofa af því ég var búin að samþykkja að taka aukamorgunvakt upp á Sunnu :S ohhhh ég er svoooooo fkn fúl að mig langar til að berja eitthvað :(
Ég þoli ekki að hafa misst af þessum fundi, það er bara svo asnalegt, þeir hljóta að hafa sent líka bréf um þetta í pósti, það getur ekki verið að maður hafi bara átt að ramba á þetta þarna ! En ef þeir sendu bréf í pósti af hverju í fjandanum fékk ég það ekki :(
Ohh og víst ég er byrjuð að pirra mig þá ætla ég bara að halda áfram, ég er ekki enn búin að fá borgað út námslánið og ég næ ekki í neinn hvorki hjá LÍN né Nemendaskránni til að fá að vita af hverju það er :( svo ég þurfti að hringja í bankann og framlengja þessum blessaða yfirdrætti einu sinni enn .....
Djöfull ég er svo fúl að mig langar ekkert í þennan fjandans skóla sem er svo mikið bákn að það er aldrei hægt gera neitt almennilega ! Djöfulsins .........................
Og ofan á allt saman þá líður mér bara ömurlega, er annað hvort að fá e-a helv flensu eða að gera útaf við sjálfa mig af stressi, fékk ógeðslega martröð í nótt og er með helv hausverk ...........
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario