miércoles, 7 de septiembre de 2005

gaman í spænsku :)

Jæja skólinn er byrjaður á fullu en þó ekki að öllu áfallalaust :Þ Á hverjum einasta degi er ég búin að lenda í veseni með að finna þær stofur sem ég á að mæta í enda eru þær nú ekkert á eðlilegum stöðum, ein er í kjallara Aðalbyggingarinnar og í dag mætti ég í tíma í stofu sem er í Þjóðminjasafninu :Þ Svo er ég líka búin að vera veik frá því á mánudaginn og lá bara heima meiri hluta gærdagsins :S Ég hef bara ekki tíma fyrir e-n slappleika og er þess vegna í skólanum í dag. Annars líst mér alveg stórvel á þetta allt saman, þetta verður hörkuvinna. Allt öðruvísi nám en sálfræðin og reynir á aðra hluti. Ég þarf að skila inn ritgerðum á spænsku í öllum fögunum og einnig eru einhver munnleg verkefni svo þetta verður áskorun ! Á morgun er, að mig minnir, fyrsta spænskunema get2getherið :Þ Það er á Café Cultura sem er svo vel við hæfi :D Mér tókst líka loksins að velja mér gleraugu :Þ og ég fæ þau þegar pabbi fer út 10. okt. Ég þarf semsagt að hanga með þessu gömlu, hrikalega sjúskuðu og beygluðu í mánuð í viðbót : / Jæja ég þarf víst að drífa mig í tíma, Menning, þjóðlíf og saga Spánar eftir korter :) Verst að ég hef aldrei komið til Spánar !

1 comentario:

Anónimo dijo...

Láttu þér batna. Spænsk menningarlíf, vá það hljóma mjög áhugavert :o) Gangi þér annars vel í skólanum !