lunes, 5 de septiembre de 2005
ekki lengur reið :D
Ég skrifa reiðipósta morgunsins á stress, pirring og flensu sem er að plaga mig :Þ Já ég er mun rólegri núna :D Ég mætti í fyrsta tímann minn í dag og er því orðinn spænskunemi :D Þetta var bara mjög fínt, allt önnur spænska en ég tala en samt í lagi :) Þetta var semsagt tími í Menningu, sögu og þjóðlífi Spánar (ég hef aldrei komið til Spánar !)
Eftir tíma brunaði ég svo inn í Smáralind að finna mér nýja gleraugnaumgjörð. Það er sko alveg komin tími til að endurnýja þau :S Er búin að eiga þau sömu frá því í 9.bekk ! Góð nýting samt :Þ Reyndar hefur sjónin lítið versnað svo það er ekki málið :D En aníveis fann nokkrar sem ég fékk að taka með heim svo ég þarf að spögulera í kvöld hverja ég ætla að kaupa. Ég fékk mömmu líka með mér í smá leiðangur að finna einhver efni fyrir svona krulluhár, það er annars svo úfið greyið.
Jæja ég ætla að fara að koma mér af stað, ég er að fara að hitta Steffi, skiptinemann sem ég ætla að aðstoða þessa önnina.
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
heibb, veit að þetta hljómar illa en ekki farðu í sturtu, og þvoðu hárið, settu nærinug og ekki skola hana alveg úr, þurrkaðu og ekki greiða það... þá verða krullurnar geggjað flottar :) trust me i know :) and i know you know me :)
Publicar un comentario