miércoles, 14 de septiembre de 2005

bara þrugl

Gamalt fólk sem notar strætó eru hetjur í mínum huga ! Maður fær bara nánast harðsperrur af því að reyna að halda sér í sætinu þegar maður er í strætó hérna í miðborginni :Þ Mér finnst strætó annars ágætur, það er hundleiðinlegt að keyra í þessari traffík og sérstaklega núna þegar það er lokað út um allt ! Ohhh mig langar að hafa svona strætó á Íslandi :Þ Það er komið að törn 2 í OC maraþoni Írisar og Kristínar :Þ Hún verður í kvöld :D svo verður ANTM skotið inn á milli :Þ Skólinn er kominn af fullt skrið og vá það er svo gott. Mér finnst ég bara vera komin heim :Þ Líður bara alveg undarlega vel á háskólasvæðinu :Þ vá hvað geri ég þegar ég klára námið mitt ! Ég verð eilífðarháskólanemi :) Planið er að fara í yoga upp í Laugum á eftir en ég er e-ð tortryggin á það .... Yoga á stað þar sem maður má varla vera í mislitum sokkum :S Undarlegt mix .... ég ætla samt að reyna að fara ef að ég verð búin að læra fyrir málnotkunina á morgun : /

6 comentarios:

Anónimo dijo...

Ég er að hugsa um að taka bara dílnum þínum :o) En varðandi Strætó, þá hef ég nú orðið svo fræg að taka strætó tvisvar eftir að skólinn byrjaði og GUÐ MINN GÓÐUR hver lét þessa menn fá ökuskírteini, maður er bókstaflega með skítinn í buxunum alla ferðina :o, En gangi þér vel að læra skvís :o) Gott að þér líði vel !

Anónimo dijo...

Það er alltílagi að fara í yoga í laugar, amk þegar ég fór þangað. Þú átt hvort eð er ekkert að vera í sokkum ;)En anyway, það var alveg fullt af fólki í skræpóttum fötum og allt mögulegt.

Anónimo dijo...

jebbs ég fór reglulega í poweryoga í laugum....vel heppnað og rosa skemmtilegt

Íris dijo...

ohhh í alvörunni ! og ég var of löt til að fara ! Jæja þá bara í næstu viku :D

Anónimo dijo...

Bara kíkja aðeins á þig ;o) Kvitta fyrir innlitið :o)

Anónimo dijo...

Takk fyrir gærkvöldið :)