sábado, 17 de septiembre de 2005
allt í svo ljómandi gúddí : )
Tíminn líður alveg ótrúlega hratt ! Á fimmtudaginn var komið ár frá því ég og Orri fengum íbúðina afhenta. Í hausnum á mér eru liðið miklu lengra frá því þetta var. Það hefur bara svo margt breyst og það allt bara til hins betra :)
Mér finnst ég eiginlega bara vera orðin allt önnur manneskja heldur en 15. sept 2004, þá var ég að byrja í sálfræði, algjörlega lost, nýbúin að kaupa mér íbúð sem ég hafði ekki tíma til að flytja inn í :Þ
Annars hef ég það meira en frábært þessa dagana, mér finnst svo gaman að vera byrjuð í skólanum og það eina sem mætti fara betur er aginn .... Svona svo ég fari að mæta í ræktina á morgnana áður en ég fer upp á Hlöðu, það er alveg draumurinn minn.
Ég ætti kannski lítið að tala um þessa blessuðu rækt þar sem ég hef mætt ansi stoppult, ég kenni um 2x permanetti og vaxinu líka :Þ svo var ég líka veik :S Svo sit ég hérna í vinnunni og var að úða í mig súkkulaðikökusneið, pönnuköku með sykri og pönnuköku með sultu og rjóma ! Svona er það þegar það býr amma í húsinu sem að maður vinnur í, þær verða bara að gefa manni að borða ! :D
Það er ekkert að gera hjá mér í vinnunni í augnablikinu svo ég er að spá í að taka fram bækurnar og reyna að stauta mig í gegnum þennan endalausa texta með orðum sem ég skil ekki baun ! Þetta er verra heldur en sálfræðin, þar skildi ég alla veganna eitthvað í því sem ég las !
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

5 comentarios:
vááá hvað tíminn er fljótur að líða.... ár í sambúð... fúff, svo fullorðin :) selma
á ekkert að reyna við gátuna mína?
sem var?
Gátan er á minni síðu. En annars hefur þú verið Klukkuð! Sjá nánar einnig á minni síðu :o)
Publicar un comentario