sábado, 20 de agosto de 2005

meðvitaður neytandi :Þ

Er enginn nema ég sem tekur eftir því hvað Bónus eru lúmskir ??? Ég var að kaupa Cocoa Puffs um daginn og tók svona huge pakka því ég hugsaði meira magn og því ódýrara og sá pakki kostaði næstum 500 kall og var 1300 gr. Svo varð ég forvitin og langaði að vita hvað ég væri að spara mikið svo ég kíkti á það hvað 500gr pakki kostaði .... Hann kostaði bara 105 kr :S Svo ég gat keypt 3 500 gr og verið með 1500 gr fyrir rúmlega 300 kall !!! Þetta er samt ekki í fyrsta skipti sem ég tek eftir svona rugli hjá þeim. Í verðstríðinu mikla :Þ þá var ég að skoða breytingarnar á strimlunum, sem sagt fyrir og á meðan á verðstríðinu stóð ..... Og þá var Bónus að hækka verð á vörum sem að fáir keyptu og svona lúmskt að minnka afslátt af öðru. T.d. þá var alltaf 10% afsláttur af ostinum, hann var allt í einu bara orðinn 5% Ójá voðalega er maður orðinn meðvitaður neytandi :Þ Hey en tölvan mín er komin úr viðgerð :D ohh þvílík ofurgleði :) Ég fékk nú samt að heyra það frá þeim þarna á verkstæðinu að lyklaborðið væri búið að vera til allan þennan tíma, þeim hafði bara ekki dottið í hug að prufa lyklaborð frá sama framleiðanda sem var í annarri tölvu :S Selmus áttu afmæli í gær :* Hefði sko alveg viljað kíkja á afmælisbarnið en mínz var föst í vinnunni. Ég er svo að vinna bæði lau og sun 12 tíma vaktir svo ég næ ekkert að kíkja í bæinn á menningarnótt : ( Orri er líka að vinna í dag frá 12-01. Ég ætla að rölta til hans í kvöld fyrir flugeldasýninguna og þá getum við horft á hana frá vinnunni hans á Skólavörðustígnum :D Ohh svo í næstu viku verðum mikið action :S Ég er að fara í permanett á mánudaginn, Orri fer í aðgerðina á þriðjudaginn svo erum við María að fara í hið ógnvænlega brasilíska vax næsta fös :S

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Já en Íris... COCOA PUFFS!!!!!!

Anónimo dijo...

Hæhó!!!
Ég er komin heim :) Oh ég þarf svo líka að fara í permanent, verð að panta tíma strax! Við verðum að hittast sem fyrst, ertu ekki í fríi á morgun eða hinn??? Ég hringi allavegana í þig og við finnum okkur einhvern tíma til að hittast ;)