miércoles, 17 de agosto de 2005

loksins loksins loksins frjáls manneskja :D

Eftir langa og stranga :P viku þá er þetta próf loksins búið og núna er þetta mál bara ekki lengur í mínum höndum. Ég átti svo erfitt með að sofna í gær og svaf svo illa í nótt bara útaf stressi. Mætti svo kl.9 í morgun upp í HÍ. Ég veit ekkert hvernig mér gekk :S held að þetta verði frekar tæpt :( Vona bara svooooo mikið að þetta verði í lagi ! Ég veit um helling af öðrum nauðsynlegum hlutum sem ég get eytt 90þús kalli í ! Æ ég er samt bara alveg svona ánægð BTW þá er þetta demantabroskall !! :D En jæja nú er þetta próf búið og ég get farið að hugsa um aðra hluti ... Þess vegna fór ég áðan í bóksöluna og keypti flest allar bækurnar fyrir næstu önn og er svona byrjuð að glugga í þær :Þ Æ ég er bara komin í svo mikinn námsfýling eftir að hafa mætt upp í HÍ í dag, vildi helst bara að skólinn væri að fara að byrja á morgun ! Í kvöld ætla ég sko að slaka VEL á, fyrsta kvöldið í allt sumar þar sem ég má það sko alveg án nokkurs samviskubits :D Reyndar er Orri að vinna til 1 svo ég verð bara alein en það er svo sem ekkert verra :) Jæja ætla að fara að halda áfram að vinna :Þ og sjáiði teljarann sem Orrinn minn setti inn fyrir mig :D Mér tókst sko ekki að átta mig alveg á þessu sjálf og þá er ágætt að eiga einn svona tölvugúru : * Og svo annað, ég ákvað að breyta passwordinu að albúminu svo af þið sem viljið fá aðgang látið mig bara vita og ég læt ykkur fá það :D

1 comentario:

Anónimo dijo...

djíí hvað mér brá þegar ég sá broskallinn áður en ég las:) hélt þetta væri e pilla :/

selma