sábado, 27 de agosto de 2005

hver vill láta kvelja sig ?? ...ég, ég!

Ég er viss um það að ef framkvæma ætti aðgerð á spítala sem myndi valda álíka sársauka og maður upplifir í brasilísku vaxi þá myndi maður vera svæfður eða þá alla veganna kirfilega deyfður :Þ Ég og María komumst þó heilar frá þessur (misheilar reyndar :P) Maður strippaði að neðan, leið alveg eins og ég væri hjá kvennsa ! svo er bara rúllað vaxinu á (ÁI það var meira segja sárt !!) svo strimillinn settur á og KIPPA "$#$%&/%$#"" bíta á jaxlinn og reyna að líta út fyrir að mann langi ekki að berja grey stelpuna sem er að þessu :D
Við skelltum okkur svo beint í bakarí að þessu loknu og það leið varla klst þá vorum við farnar að tala um að þetta hefði nú ekki verið neitt svo slæmt :Þ Ætli þetta sé ekki heilamekkanisminn sem að lætur mann alltaf gleyma öllu slæmu sem hefur verið að kikka þarna inn :Þ En ég held að við förum pottþétt báðar aftur, gellan sagði að þetta væri alltaf LANGLANGverst í fyrsta skiptið og svo mun skárra í annað skiptið svo við ætlum bara að trúa því :Þ
Ég verð nú reyndar líka að minnast á rasssærindin sem ég er að upplifa þessa dagana .... svona er að skella sér í reiðtúr, maður sest á hest í hálftíma og getur svo ekki sest niður eftir það í nokkra daga :Þ æ maður lifir þetta af :D er bara fegin að ég er ekki á leiðinni í hjólaferð hehe það gæti verið vont :D
Ég er líka komin með áráttu sem örugglega allir háskólanemar kannast við þegar þeir eru búnir í prófi .... Ég kíki á Ugluna skrilljón sinnum á dag til að athuga hvort einkunnin sé komin inn !!! Þetta byrjaði voða rólega kíkti svona 1-2x á dag en núna OMG þvílík geðveiki ... Ég er með Ugluna opna alltaf þegar ég er í tölvunni og svo refresha ég bara reglulega (15.mín fresti :Þ) til að tékka !!!
Ohh þessir illgjörnu kennarar, þetta er bara 21 próf í Tölfræði II ætla þeir að fara bara yfir 1 á dag og nýta þannig allar 3 vikurnar sem þeir hafa í þetta :'( Ef þeir gera það þá missi ég vitið áður en ég fæ einkunnina.
Jæja ég get þó séð bjarta hlið á þessu, ég er þó ekki að fara aftur í sálfræðina því þá hefði ég líklegast þurft að byrja á 2. ári án þess að vita hvort ég mætti vera þarna og svo hugsanlega væri manni bara sparkað úr náminu þegar einkunnin kæmi inn !!! : (
Jæja 2 x 12 tíma vakt um helgina og svo permó á mánudaginn :D Þessi endalausu permanett og vax mín eru alveg að setja æfingaprógrammið úr skorðum. Er núna ekkert búin að fara að æfa í viku út af þessu !
Fyrst var það permið, mátti þá ekki þvo hárið í 2 daga, svo ætlaði ég á fimmtudaginn en þá var vinnuferðin, næst var það föstudagurinn og þá mátti ég ekki fara útaf vaxinu :S og svo ætla ég bara aftur í perm á mánudaginn :/ Mjög léleg skipulagning ! :Þ
Ég er reyndar að plana það að vakna fyrir allar aldir á mánudaginn og fara að æfa áður en ég fer í permið kl.9 ! Það væri geggjað :Þ svo gæti ég bara farið bæði á fimmtudeginum og föstudeginum og þá væri ég súperdugleg ! Í vetur ætlum við Orri nefnilega að vera dugleg við að æfa og svona koma þessu inn í dagsplanið svo maður sé ekki alltaf að taka allt annað fram yfir hreyfinguna :S
~Íris out~

No hay comentarios.: