domingo, 21 de agosto de 2005
HuGsI hUgS
Í dag hef ég svo sannarlega fengið að finna fyrir því hvernig það er að vera í vinnunni þreyttur :S ekki af því ég var á djamminu í gær nei ég var sko bara einfaldlega andvaka til 3 : / Vaknaði svo kl. 7 á sama tíma og Orri var að koma heim frá Pésa. Þarna sést greinilega hver lifir skemmtilegara lífinu í þessu sambandi :Þ
Annars náði ég að hugsa mjög mikið í gær (hmm já það gerist sjaldan), eyddi 4 klst andvökunni minni í það :Þ En aníhús ...
Það er alveg ótrúlegt hvernig lífið hefur tilhneigingu til að taka undarlegar stefnur. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér það þegar ég kom heim frá Venezuela og allt var í rugli í mínu lífi að út úr því kæmi það sem að skiptir mig einna mestu máli í dag sem er Orri. Eins hefði ég aldrei getað hugsað mér það að tvítug væri ég búin að kaupa mér íbúð og koma mér vel fyrir í miðbæ Reykjavíkur, það gerðist nú bara allt í einu og einhvern veginn bara sjálfkrafa. Svo var ég búin að ákveða að eyða sumrinu í starfi sem að krafðist nákvæmlega einskis af mér en endaði svo hérna á Sunnu í starfi sem mér finnst frábært með frábæru fólki og reynir mikið á þar sem ég þarf að tala ensku ALLAN daginn og smá spænsku annað slagið :) og svo er þetta bara alveg hellings vinna að vinna með ferðamönnum, það er svo mikið sem þarf að hjálpa þeim með og þá þarf maður sko að vita ALLT eða a.m.k. vita hvernig maður getur fundið svarið :Þ
Núna er ég líka að fara í spænsku í Háskólanum og ég veit ekkert hvert það á eftir að leiða mig. Ég finn það að sálfræðin heillar mig svo rosalega en mig langar ekki að læra hana hérna heima. Lífeðlisfræði (hegðunar) finnst mér líka alveg ótrúlega skemmtileg en ég veit ekki hvar ég get lært það. Til að komast í lífeðlisfræði í háskólanum þyrfti ég að fara aftur í framhaldsskóla og útskrifast á náttúrufræðibraut :S En ég tek núna bara eina önn í einu og byrja alla veganna í spæsnkunni í haust og sé svo til hvernig mér líkar :)
Já ég held ég endi núna þessa hugsanafærslu mína, er líka komin með dúndrandi hausverk, ætli það sé vegna þess hvað ég er búin að hugsa mikið :Þ En alla veganna þá tók það mig 4,5 tíma að klára þessa færslu því ég verð búin í vinnunni eftir 20 mínútur : *
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
Vá, flott færsla hjá þér... Virkilega :o) Fær mann aðeins til að pæla !
Alltaf gott að hugsa aðeins :)
Vííí ég er svoooo forvitin að vita hvernig permanetið kom út en ég trúi samt ekki öðru en að þú lítur stórkostlega út:o) Við hittumst náttla í því brasilíska á fös en við verðum endilega að reyna að hittast fyrr ef ég verð ekki of busy í skólanum sem ég byrja í á morgun:/:) heyrumst besta stóra systirin mín:o)
Publicar un comentario