Mmmm maður kann vel að meta frí eftir langa vinnutörn :D Við nýttum daginn í gær svooo vel :Þ Tókum íbúðina í GEGN og nú er svo hreint og vá hvað það er mikið betra ! Við lærðum líka tölfræði og skelltum okkur svo upp í Laugar og eyddum þar heilum 2400 kr bara til að prufa salinn þar. Við erum að spá í að kaupa okkur árskort þarna (fkn 90000 kall :S) en tækin þarna eru mjög góð og bara öll aðstaða til fyrirmyndar : / og svo getur maður farið í sund þegar maður vill :Þ Ætli við skellum okkur ekki bara á þetta og reynum svo að mæta á þeim tímum sem mesta fólkið er ekki. Við vorum nefnilega í gær, milli 17-18 og það var MIKIÐ af fólki :Þ Það er svona þegar maður er búinn að vera að æfa í Nautilus í Suðurbæjarlaug og svo háskólaíþróttasalnum :S Þar eru bara nokkrar hræður í einu :Þ
Ég verð samt að segja það að bara það eitt að mæta einu sinni í ræktina fær mann til að vera aðeins heilsusamlegri :Þ núna sit ég með skyrdollu fyrir framan í staðinn fyrir coco puffsið :Þ Reyndar held ég að þeir hafi verið að breyta coco puffsinu það er ekki eins og það var :D
Jæja ég ætla að fara að drífa mig að þvo og þrífa bílinn því hann er ógeðslegur :S

No hay comentarios.:
Publicar un comentario