Undarlegt hvað allir eru orðnir fullorðnir í kringum mann (ja eða svona með smá undantekningum :Þ)
Fólk að fara að gifta sig og fólk komið með börn ! Úff mér finnst ég sko ekki vera orðin svona fullorðin, ætli ég verði nokkuð orðin svona stór fyrr en eftir svona 4-5 ár :Þ er soddan hægþroska grey. Ég tók nú samt það stóra skref fyrir 7 mánuðum síðan að flytja að heiman og ekki bara það heldur náttla KEYPTI ég íbúð sem er ansi stór pakki finnst mér sko :Þ*hugsikarl*
Miðað við planið mitt næstu árin þá hef ég bara engann tíma til þess að vera stór :D Næstu tvö árin ætla ég að vera í spænsku í HÍ (reyndar er ég komin með bakþanka believe it or not :S sálfræðin aftur farin að toga í :S) og svo er stefnan tekin á Madrid 2007-2008. Ef mér tekst að láta Orra elta mig þangað þá ætla ég að elta hann annað hvort til Bretlands eða Danmerkur eða hvar sem það er sem hann kemst í námið sem hann ætlar í. Þá er sko komið árið 2009 og mín orðin OMG 25 ára !!! Ellikelling !!!
Hmmm með þetta giftingarmál þá verð ég reyndar að segja það að það er harla ólíklegt að ég pússa mig saman við einhvern í kirkju. Ef ég skyldí nú giftast Orra þá væri það alveg týpískt að við myndum bara mæta til sýsla eða hvar sem maður framkvæmir svona dót eða þá að við myndum faxa inn svona giftingareyðublað :D Geðveikt RÓMÓ :D svo myndi ég vilja fara í heimsreisu fyrir allan peninginn sem myndi annars fara í voða glamúr veislu .... Hmmm líst bara ágætlega á þetta plan :D
Já mig langar að læra, ferðast, heimsækja vini mína um allan heim .... hmmm svo er ég líka dauðhrædd við lítil börn, þau eru óútreiknanleg !
Já ætli ég muni ekki bara deyja ein, barnlaus og ógift :D
og svona útlítandi :O :D


2 comentarios:
Hehehe, engar áhyggjur íris mín því ég er nú einu ári eldri og er enn ekki orðin stór!
Við verðum þá bara litlar-stórar saman :)
hehe já veistu mér líst bara vel á það. Vona samt að ég muni líta betur út en konan á myndinni :Þ
Publicar un comentario