martes, 23 de agosto de 2005

ekki svo mikið permó en úr því verður bætt :Þ

Mín fór í krullur í gær og árangurinn var nú ekkert rosalegur ... svo ég er að fara aftur næsta mánudag til að bæta aðeins í :) Svona er það núna og þetta er nú bara eins og á mínum bestu/verstu hárdögum :Þ Orri er í aðgerðinni örugglega bara núna :( :) en svo er þetta búið og vá hvað við verðum ánægð þá! Það er búinn að vera mikill hasar hjá okkur í sumar, fara í aðgerð, byrja í vinnu, skipta um vinnu, finna vinnu fyrir Orra, læra fyrir próf, fara í ferðalag, fara í próf, önnur aðgerð og svo borga stóra og háa reikninga 8) Ekki alveg týpískt sumar þar sem maður er bara í chilli og er að vinna :) Ég er að vona að Orri fái bara að koma heim í dag, þessi aðgerð er mun minni en þessi fyrsta svo hann ætti að vera hressari og auk þess var hann fyrstur inn í morgun (við fórum upp á spítala kl.7 *geisp*) svo hann ætti að vera búin snemma .... Jæja maður er bissí bissí as usual :Þ Ég er að fara að hitta Rúnu frænku núna eftir hádegi og við ætlum að skella okkur á kaffihús, við erum búnar að vera svo latar við að hittast frá því ég flutti en nú skal bæta úr því :Þ Á morgun er svo pjakkaafmæli í Keflavík, Jökull Ingi frændi minn á afmæli og verður 1 árs :), ætla að sjá til hvort ég fari, ég er búin að taka mér frí í vinnunni á morgun til að vera hjúkka. Svo á fimmtudaginn er ég að fara í reiðtúr með vinnunni :Þ Lovísa, sem á Sunnu, er að bjóða okkur og eftir á ætlum við allar að borða saman :D Svona smá sumarlokagaman því það eru allir að byrja í skólanum og hætta :'( Ég er búin að kynnast svo frábæru fólki þarna á Sunnu, leiðinlegt að allir séu að fara. Á föstudaginn er svo hið hræðilega brasilíska vax :S úff ég veit ekki hvað ég er að spá :Þ Jæja ég ætla að drífa mig og henda í vél áður en ég fer út :D

No hay comentarios.: