miércoles, 10 de agosto de 2005

7 dagar í próf !!!

Ansi skemmtilegur síðasti sólarhringurinn í mínu lífi
  • Ógeðsstuðullinn minn hækkaði ansi mikið þegar ég fann banana sem hafði gleymst að henda þegar við fórum í ferðalagið. Hann var myglaður FASTUR við hilluna !!!
  • Ég og Lóa skelltum okkur á kaffihús, ooohhhh ég verð bara að viðurkenna það að ég hef saknað hennar. Við höfðum ekkert hist frá því á afmælinu hennar 12. janúar og það var bara svo gaman að hittast og spjalla smá :D Hún á líka kort í Laugum svo við kannski skellum okkur bara saman í gymmið í vetur :Þ
  • Ég fór að lyfta áðan og þegar ég kom heim meikaði ég varla að labba upp tröppurnar .... Það hefði nú verið í lagi ef ég hefði ekki bara verið í TÆKJAKENNSLU *roðnroðn*
  • Svo kom ég heim og hakkaði í mig skál af Cocoapuffsi :D
  • Ég er búin að ákveða að fara í permanett bráðum :Þ Fór í klippingu í gær og nú er ég bara alveg ákveðin í að fá mér smá krullur .... engar memekrullur samt : )
  • Ég hringdi í Neytendasamtökin út af blessuðu tölvunni minni .... Þeir segja að það sé venjulega miðað við 2 vikur í viðgerð og að Task eigi annað hvort að láta mig fá hana NÚNA í lagi eða láta mig fá nýja !!! Og hana nú, ég þarf þá víst bara að safna smá pirringi og kröftum og fara að frekjast í þeim : /

Núna eru bara 7 dagar í prófið og það eina sem ég hugsa um er

2 comentarios:

Anónimo dijo...

óóóó já fíla krullur :)

Anónimo dijo...

hehehehe lífið er nú ansi skemmtilegt hjá þér:D Ég þori eila ekki að fá mér krullur eftir að mamma sagði að einu sinni hafði hárið hennar brennst þegar hún fékk sér svolis og þar sem ég er með alveg eins hár og mamma þá sé ég fram á hörmungar ef ég geri það:Þ En ég er að safna hugrekki til að skipta um hlið á toppnum mínum:S Þá verðum við systurnar flottar..ég öfugsnúin, þú lambahaus;) og Eydís pæja með svart undir - úújei beibís:P