sábado, 13 de agosto de 2005

5 dagar í próf :S

Þessi prófabissniss er svo ekki fyrir mig, ég er aldrei jafn eirðarlaus og einbeitningarlaus eins og akkúrat þegar ég á að vera að læra fyrir próf :S Ég held samt að ég nái þessu alveg, er búin að vera með besta kennara sem völ var á :Þ Það var samt kannski bara lán í óláni að ég nennti ekkert að læra í gær því það sem ég ætlaði að vera að gera var að lesa 11. kafla. Svo þegar ég loksins tók mig til og ætlaði að gera eitthvað þá fann ég ekki glósur fyrir kaflann, ekki heldur á netinu :S svo ég fór og leitaði að kennsluáætluninni og þá er sá kafli bara ekkert til prófs :S æ ég er stundum ansi glær :S Ég ætlaði líka að fara að æfa í gær en ég var með svo miklar harðsperrur eftir tækjakennslutímann *roðnaennþámeira* að ég ákvað að fara frekar bara í dag :) En vá það er ekkert smá lélegt form sem maður er í :Þ Það er samt svo gaman að vera byrjaður að æfa aftur svona reglulega. Það er líka mjög gott að vera í Laugum, mun betra en ég hélt, svolítið dýrt samt :S En ég ætla alla veganna að koma mér aftur í form, ætla ekki að vera endalaust með námsspikið á mér :Þ stefnan er að svona 10 kíló fari eða alla veganna ekki meira en það :D En svona að öðru ég kláraði loksins að setja allar myndirnar inn eftir ferðalagið :Þ síðan er http://www.ofoto.com og username er irisomars@hotmail.com og password er hringur :Þ átti eftir að skella inn myndunum frá síðustu dögunum en þær eru semsagt komnar núna. Jæja ég ætla að drífa mig og henda Orra úr rúminu, við erum að fara í morgunmat til Maggýjar ömmu hans .... mmmm ég fæ alveg vatn í munninn :Þ

1 comentario:

Anónimo dijo...

Frábærar myndir. Þið hafið nú mest megnis fengið gott veður. Góð stelling hjá þér, gefur þessu svona ákveðin blæ ;o) En skvís, ég vona að þér gangi úber vel í prófinu. Hvað segir þú um að hittast einhvern tíma eftir það, hmm ??? Láttu allavega heyra í þér. Ég veit ekki hvort ég sé búin að láta þig fá nýja númerið. Sendi það í maili á eftir. Annars stórt knús og hafðu það gott :o)