skip to main |
skip to sidebar
Við erum heimsforeldrar ... Hvað með þig?
Í dag urðum við Orri heimsforeldrar :) Við styrkjum Unicef um 1000 kr á mánuði og það fer í einhver verkefni sem að tengjast börnum. Ég vildi það frekar heldur en að "eiga" barn einhvers staðar og fá bréf og svona. Þetta gagnast fleiri börnum í einu. Við ætlum reyndar að sjá til hvort við getum ekki gefið meira á mánuði, maður ræður alveg sjálfur hvað upphæðin er há og svo getur maður alltaf hætt við eða lækkað hana aftur ef það kemur eitthvað upp á.
Ég er nefnilega búin að vera að bíða eftir því að fá VISA frá því í maí til að geta skráð okkur í þetta, það tók bara svolítið langan tíma hjá KB-banka. Svo ég vil endilega hvetja alla til að gera þetta, 1000 kall á mánuði er ekki nema bara hálf pizza og eins og leikarinn þarna segir sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu, þá kostar bara 200 kr að bólusetja barn. Það eina sem þarf er smá aukapeningur, visakort og síma til að hringja í 562 62 62
Jæja ætli það sé ekki best að ég reyni að gera eitthvað úr þessum degi, ætla að fara í KB-banka og fara í greiðsluþjónustuna hjá þeim. Það er betra þá er alltaf bara sama upphæðin sem maður greiðir á mánuði og maður er laus við svona reikningasveiflur.
3 comentarios:
ekki ennþá, en vonandi fljótlega!
Dugleg eruð þið:)Eeen mig langar nebbla að "eiga" barn í útlöndum því þá sé ég hvað peningarnir mínir fara í - veistu hjá hvaða félagi ég get gert það???
hmmm er það ekki þarna ABC barnahjálp? mig minnir það einhvern vegin
Publicar un comentario