viernes, 29 de julio de 2005
sooooo trettt
Ég er á þriðju 12 tíma vaktinni frá því ég kom heim á mánudaginn, líka 12 tíma vakt á morgun og svo aftur á mánudaginn svo það er augljóst hvar ég verð þessa verslunarmannahelgi :Þ
Öll þessi vinna gerir það að verkum að ég á mér voða lítið líf og ekki skánar það þegar Orri fer í vinnuna kl.18 og er ekki búin fyrr en 2 um nóttina. Þá fæ ég bara ekkert að sjá hann því ég er sofnuð áður en hann kemur heim og farin í vinnuna áður en hann vaknar :S En þetta eru bara nokkrar vikur fram að skólabyrjun svo maður bara lifir þetta af :D
Annars verð ég að afsaka mig fyrir að vera ekki enn búin að setja neinar myndir inn frá ferðinni, mér tókst að koma myndunum inn á tölvuna hans Orra en svo gat ég ekki sett þær hérna inn. Svo hef ég bara ekki haft tíma til að búa til albúm og henda þeim öllum inn þar. Helsta ástæðan fyrir þessu framkvæmdaleysi fyrir utan það að ég er alltaf í vinnunni er sú að TÖLVAN MÍN ER ENN Í VIÐGERÐ !!!! Þeir eru að bíða eftir nýju lyklaborði að utan og vita EKKERT hvenær það kemur :'( Ég er sko alveg með fráhvarfseinkenni.
Ég gladdist mikið í fyrradag þegar ég kíkti á álagningarseðlana okkar Orra frá skattinum, við vorum að fá hvorki meira né minna en 155 þúskall :Þ Þetta bjargar okkur alveg því við eyddum ansi miklu í ferðalagið og í ágúst þá þurfum við að borga aðgerðina hans Orra og það verður á bilinu 70þús-100þús : / plús það að bíllinn þarf að fara í viðgerð :S
hmmm ég er víst í vinnunni, þetta er bara svona rólegur morgunn. Ég sit bara og GEISPA en ætli maður fari ekki og reyni að gera eitthvað gagn ......
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario