lunes, 11 de julio de 2005

ohhh ég fer í fríið, ég fer í fríið ég fer í fríið .....

Hérna er smá sýnishorn af þeim stöðum sem við ætlum að kíkja á í næstu viku :Þ Svona fyrir þá sem þurfa að sitja heima :D Maður er byrjaður að plana útileguna í næstu viku :Þ Það er reyndar bara fjandi dýrt að gista í tjaldi, alveg upp í 1000 kall nóttina sýnist mér. Það er reyndar alveg ótrúlega lítið af upplýsingum um verð á tjaldstæðunum ! Alveg fáránlegt : ( En þetta verður bara ævintýri, við erum með þónokkra staði sem við viljum alveg endilega fara á en svo verður þetta meira bara fljótandi, fylgjum góða veðrinu ef það verður eitthvað : D Annars er það eina sem er planað enn sem komið er, við ætlum að keyra annað hvort á Klaustur eða Skaftafell fyrsta daginn og vera þar fyrstu nóttina. Maður þekkir Suðurlandið fram að því alveg þokkalega vel svo við ætlum ekkert að vera að sóa tíma þar heldur skella okkur bara austur sem fyrst og fara hringinn þaðan. Á morgun ætla ég á bókasafnið að finna ferðahandbækur og göngubækur og svo verður bara lagst í skipulagningu alla vikuna Jæja Adios ég þarf víst að drífa mig í vinnuna : )

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Aaah svo Orri fékk frí í vinnunni - flott:D Það verður svoo gaman hjá ykkur skötuhjúunum...En getiði ekki bara stundum sofið í bílnum í staðin fyrir að tjalda?!? Má það kannski ekki?!?!

Íris dijo...

hehe já ætli við endum ekki á því :Þ Æ nei í versta falli þá verður þetta 9000 kall í gistingu alla vikuna svo ætli maður splæsi ekki bara á sig plássi á tjaldstæði ;)