jueves, 7 de julio de 2005

Ohh minnz er enn veikur

Ohhh búhú ég er svo slöpp :( Það verður víst hvorki fjallganga í dag né sund :S Ég ætla bara rétt að vona að ég verði orðin hress á sunnudaginn því ég ÆTLA upp á Skarðsheiði ! Ég er sko alveg á því að þessi ferð mín í bankann hafi alveg gert mig helmingi veikari. Mér tókst nú samt að skrá okkur í greiðsluþjónustuna svo hér eftir þarf ég lítið sem ekkert að spá í því að greiða reikninga og allir stórir háir leiðinlegir reikningar eins og tryggingarnar og skólagjöldin eru bara inni í þessari mánaðarlegu greiðslu og þá þarf maður ekki að vera að stressa sig eins og núna í sumar þegar maður varð að gjöra svo vel að eiga 90þús kall aukalega í júlíbyrjun til að geta borgað HÍ. María og Eydís eru að fara að koma til mín, við ætluðum á kaffihús en ég held ég bara verði að halda mig heima. Ætli við tökum ekki bara smá kaffihúsafíling hérna heima hjá mér :Þ

1 comentario:

Anónimo dijo...

Hædíhó:) Loksins kom ég og kíkti á síðuna hjá þér - er semsagt í vinnunni og hef ekkert annað að gera en að lúðast í tölvunni!:Þ En takk fyrir æðislega heimakaffihúsasystrastemmingu:D:D