sábado, 16 de julio de 2005
No more FÝLA
Jæja ég er búin að jafna mig á FÝLUNNI :Þ Er búin að taka gleði mína á ný því að núna á ég bara eftir að vinna 14,5 tíma þessa helgina eða bara 2,5 tíma í dag :D Svo þarf ég reyndar að fara beint í tölfræðikennslu hjá Orra en það verður bara fínt :Þ
Ég og María vorum svo DUGLEGAR í gær ! María kom til mín kl. 13 og við vorum á fullu allan daginn :Þ Fórum 3 svar upp í Task yfir daginn (ekki einu sinni reyna að spyrja af hverju), fórum svo í Kringluna og ég keypti mér bikiní. Það var sko mikið afrek því allar síðustu tilraunir mínar til bikiníkaupa hafa einfaldlega fallið um sjálfar sig því ég hef ekki verið í stuði annað hvort af sökum ljótunnar eða feitunnar en í gær fannst mér ég greinilega hvorki vera ljót né feit og skellti mér á fjólublátt og röndótt bikiní. Það er reyndar alveg súper sniðugt (svona eins og bikiní geta orðið sniðug :Þ) En alla veganna þá er það nefnilega svona 2in1, svo ossalega sniðugt. Ég semsagt fann ekki mynd af því en ég fékk það alla veganna í Knickerbox.
Svo fórum við María í Laugardalslaugina og syntum 1200 m, fórum líka á fimmtudaginn og syntum þá 800 m. Ég alveg elska að synda, maður er svo einn í heiminum og nær að slaka svo vel á.
En til að gera þennan dag fullkominn þá brunuðum við María svo í föstudagskaffi til ömmu og afa í Keflavík :) Það er svo langt síðan ég hef séð þau og það var svo gaman :)
Hmm jæja núna eru bara 2 tímar þangað til ég er búin að vinna :Þ
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
til hamingju með bikiníkaupin..á ég að segja þér doldið sniðugt? ég keypti mér líka svona 2in1 bikiní í knickerbox, eini munurinn er að mitt er grænt og röndótt.....vá hvað við verðum flottar :)
git falbana, fajny blog
hahaha ohhh við verðum svo sætar saman ef við förum í sund :Þ svona alveg eins ;)
Publicar un comentario