viernes, 8 de julio de 2005
guð ég er að fara í próf 17. ágúst
Ég var að fá vægt sjokk, prófið í tölfræði II er 17. ágúst sem þýðir að það eru 5 vikur og 5 dagar í prófið ! Og við Orri erum ekki einu sinni ennþá komin á efnið sem var kennt í þessum kúrs, hann er nefnilega búinn að vera að fara með mér í efnið sem var í tölfræði I því ég gat ekki lært hitt fyrr en ég kynni það :S Ohh svona lagað bítur mann alltaf í rassinn, en ég get bara kennt sjálfri mér um að hafa ýtt þessu á undan mér alla síðustu önn : /
Ég er í vinnunni núna og er í fyrsta skipti alveg alein. Ég hef alltaf getað hringt í einhvern ef að það kæmi eitthvað upp á en núna eru þær báðar í ferðalögum svo það er eins gott að ég klúðri ekki neinu. Það eina sem er enn að rugla mig er þetta með að rukka fólk og hvernig það fer inn í kerfið á tölvunni, það fer stundum í e-ð rugl hjá mér og ég veit ekki alveg af hverju :S
Ég er líka farin að hlakka svo til að byrja aftur í skólanum í haust, vá ég bara get ekki beðið :D fá að læra spænsku :D Svo ætlum við Orri kannski að kaupa okkur kort í Laugum og fara að æfa þar saman. Það er reyndar svolítið dýrt en það er svo nálægt okkur og þá getur maður líka farið í sund sem er svo frábært !
Jæja ég á eftir að sitja hérna í 4 tíma í viðbót og svo fer ég í mat til mömmu og pabba og fæ þá elsku nýju myndavélina mína sem þið getið séð hérna fyrir neðan
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Ohh þið eruð örugglega að borða góóóóða eftirréttinn akkurat núna í augnablikinu meðan ég húki hérna í vinnunni:/ En ég veit að þið eruð svo góðhjörtuð að þið eigið eftir að skilja eftir afgang fyrir mig:D
Publicar un comentario