sábado, 16 de julio de 2005
grátt og myglað
Ohhh ég nenni svo ekki að vera að vinna í augnablikinu. Það er svona þegar maður er alveg að fara í frí, það er svo stutt í það en maður þarf bara að klára síðustu dagana. Já mínir síðustu dagar fyrir frí eru tvær 12 tíma vaktir :S Æ ég ætti ekkert að vera að kvarta, mér finnst vinnan mín alltaf jafn æðisleg, ég bara get ekki beðið eftir því að komast í frí.
Tölvan mín er ekkert á leiðinni heim af verkstæðinu. Þetta lyklaborð er víst ekki til neins staðar á landinu og þeir eru að bíða eftir því einhvers staðar að utan. Svo ég mun ekkert fá hana fyrr en eftir fríið mitt. Ég hef ekki verið svona lengi án tölvunnar minnar síðan ég fékk hana og ooohhhh þetta er svoooo pirrandi. Ég þurfti að fara í gær upp í Task til að láta þá tæma SD kortið af myndavélinni á tölvuna svo ég gæti tæmt það áður en ég færi í ferðalagið. Svo er líka allt bókhaldið mitt (hehe já ég er skipulagsbrjáluð) :Þ Æ ég lifi þetta örugglega af :Þ myndi hvort sem er vera tölvulaus á meðan ég væri í burtu svoooo
Annars held ég að mér hafi tekist að gleyma húslyklunum mínum í skránni á útidyrahurðinni út á götu í gær, alla veganna hef ég ekki séð þá frá því ég kom heim í gær og ég man að ég hélt á svo miklu drasli og var eitthvað að vesenast með að koma því inn og svo opnaði Orri fyrir mér uppi :S Er ekki týpískt að einhver hlemmróninn sé með þá og ákveði svo að gista í íbúðinni okkar á meðan við erum í burtu :S :Þ
Öhhhhh er að reyna að halda í góða skapið hérna en það gengur ekkert allt of vel .... skrifa meira seinna þegar minnz er ekki alveg svona leiðinleg :Þ
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario