martes, 26 de julio de 2005
2081 kílómeter að baki !!
Dagur 1 Reykjavík - Skaftafell
Það tók tíma að koma öllu dótinu út í bíl og í lokinn var hann alveg troðfullur bæði skottið og baksætin ! Keyrðum Suðurleiðina úr Reykjavík og stoppuðum á alveg helling af stöðum. Hveragerði til að fara í Bónus, Selfoss í Ríkið, Seljalandsfoss, Skógarfoss, Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustur. Loks um klukkan 19 vorum við komin í Skaftafell. Ég og Orri vorum ekki neinir experienced tjaldbúar og þetta var svolítið bras þarna :Þ Okkur tókst alveg að setja tjaldið saman af því afi hans Orra var svo mikill snillingur að merkja súlurnar svo þetta var bara smá pússluspil. Svo vorum við með rafmagnspumpu fyrir vindsængurnar og hún var svo HÁVÆR :S við lokuðum bara vindsængurnar inn í bíl meðan það var verið að pumpa í þær. Svo veit ég ekki hvort við völdum svona lélegan stað eða hvað en við gátum varla stungið niður hælunum á tjaldinu af því það var svo stutt í sandinn :Þ
Umhverfið þarna í Skaftafelli er alveg ótrúlegt, jökullinn þarna beint fyrir ofan og svo skógurinn. Við röltum seint um kvöldið upp að Svartafossi, hann er ekkert smá fallegur, alveg þess virði að leggja á sig þetta rölt.
Dagur 2 Skaftafell - Djúpivogur
Við höfðum hugsað okkur að labba í Bæjarstaðarskóg í Skaftafelli sem hefði verið svona 3-4 tíma ganga en mínz bara vaknaði með ofnæmi um morguninn og þá er ekkert sniðugt að ætla að labba í birki :S Svo við ákváðum bara að pakka hafurtaskinu og halda áfram .....
Aksturinn þarna undir jöklinum var alveg ótrúlegur, það var endalaust eitthvað að sjá sem gerði mann alveg orðlausann. Við stoppuðum svo í Jökulsárlóni, það stóð fyrir sínu. Svo var bara keyrt og keyrt. Eftir að við vorum búin að fara í gegnum Almannaskarðsgöngin þá fundum við alveg ótrúlega flotta strönd. Ég veit ekki hvað það var við hana, þetta var bara svo góður staður. Við ætluðum að gista í Stafafelli en þegar við komum þangað þá fannst okkur það ekkert spes svo við keyrðum áfram á Djúpavog. Þar komumst við í sund, voða lítið og sæt alveg ný innilaug. Tjaldstæðið þar var líka fínt, ekki margir þar en samt alveg furðu margir miðað við staðinn :S
Djúpivogur fannst mér vera rosalega spes staður, það virtist bara liggja í loftinu að fólkinu sem bjó þarna langaði til að búa annars staðar. Það er lygi að þjóðvegur 1 sé allur malbikaður ! :S !
Dagur 3 Djúpivogur - Hallormsstaðaskógur (Atlavík)
Um nóttina kom hellidempa :S og þetta var eina nóttin sem ég vaknaði og mér var ískalt :S En þegar við fórum á fætur um morguninn var hætt að rigna en allt var rennandi blautt. Við höfðum ekkert spes að gera þarna svo við hentum öllu inn í bíl og héldum áfram. Við fórum út af þjóðvegi 1 og fórum yfir Öxi. Þetta er einhver svona hálfgerður fjallavegur. Við sáum nákvæmlega ekki neitt þar af því það var bara hnausþykk þoka en þetta stytti okkur leiðina til Egilsstaða :D Á Egilsstöðum gerðum við dauðaleit að bakaríi, fundum svo eitt bara í Fellabæ. Kíktum svo á tjaldsvæðið, það var hreint út sagt ógeðslegt. Þetta var bara eitt moldarflag og í þokkabót var þetta dýrasta tjaldstæðið sem við kíktum á á leiðinni, 750 kr á manninn fyrir nóttina. Við ætluðum sko ekki að standa í svona svo við brunuðum í Hallormsstaðaskóg og sáum svoooo ekki eftír því ! Það er alveg rosalega fallegt þarna og tjaldstæðið í Atlavík æðislegt!! Við tjölduðum á stað þar sem við höfum útsýni beint á steinaströndina og svo yfir Lagarfljótið :D Við gengum aðeins um skóginn, lærðum smá tölfræði á ströndinni og skelltum okkur svo í bíltúr. Sáum svo þennan voða flotta foss lengst upp í fjalli og rétt á eftir því bílastæði full af túristarútum. Við ákváðum að sjá what all the fuzz was about :D Þarna var sem sagt gönguleiðin að fossinum, Hengifossi. Þetta er víst einn hæst foss Íslands og ég hafði bara aldrei heyrt um hann. Það var 2,5 kílómetra ganga upp á við að honum en alveg þess virði !!
Um kvöldið keyrðum við svo aftur á Egilsstaði og splæstum á okkur í voða fínan mat á Café Nilsen. Mæli með þeim stað :D Eftir matinn tókum við rölt um Egilstaði og keyrðum svo aftur í Atlavík og áttum æðislegt kvöld í sólinni :D
Dagur 4 Hallormsstaðaskógur (Atlavík)
Okkur fannst svo frábært þarna að við ákváðum að vera 2 nætur. Um morguninn keyrðum við upp í sjoppu þarna til að fá morgunmat :Þ Matarræðið í þessari ferð var sko ekki til fyrirmyndar :S Svo brunuðum við upp á Kárahnjúka. Þetta var örugglega klst akstur í hvora átt og svo var bara eiginlega ekkert að sjá þarna. Samt gaman að hafa komið og séð framkvæmdirnar og svona :) Við keyrðum svo til Egilstaða og fórum í sund. Mjög fín sundlaugin þar, 25 m laug svo mín tók smá sundsprett.
Um kvöldið "grilluðum" við svo :Þ Við keyptum kjúklinga sem búið var að elda, átti bara eftir að hita :Þ En fínasta máltíð samt :Þ
Um kvöldið gengum við svo um allan skóginn, kíktum á trjásafnið, Guttormslund og Ljósárfoss.
Dagur 5 Hallormsstaðaskógur - Ásbyrgi
Þetta var alveg heljarinnar keyrslu dagur. Við pökkuðum upp dótinu okkar frekar snemma og fórum á Egilstaði. Kíktum á kaffihús þar og lærðum meiri tölfræði. Svo var bara brunað af stað. Við keyrðum smá eftir þjóvegi 1 en beygðum svo út af honum og fórum yfir Hellisheiði (eystri væntanlega:Þ) Það var ekkert smá útsýni þegar við vorum að keyra þar upp ! Komum svo niður og fórum í gegnum Vopnafjörð og keyrðum alla leið að Þórshöfn á Langanesi og þar fengum við ógeðslega góða og ódýra máltíð :D Keyrðum svo alveg þvert yfir Melrakkasléttuna á ömurlegum malarvegi og komum niður rétt hjá Ásbyrgi. Þar tjölduðum við og skelltum okkur svo í göngutúr þarna um botninn. Löbbuðum alveg lengst innst og kíktum á Botntjörnina og svo á útsýnisstað. Alveg rosalega fallegt þarna.
Þegar við mættum þá tókum við eftir tjaldi sem var nákvæmlega eins og okkar. Það væri ekki merkilegt nema af því það er alveg 30 ára gamalt svona hústjald í óskaplega ósmekklegum litum. Seinna um kvöldið komumst við að því að þarna var stelpa, María, sem var með okkur í FG og kærasti hennar. Þau voru líka að fara hringinn, bara hinn áttina :Þ Við eyddum kvöldinu með þeim :D Þau voru mun betri tjaldbúar en við, tjölduðu í fyrsta lagi almennilega :Þ og voru svo með ljós og hitara :D
Dagur 6 Ásbyrgi - Mývatn
Við vöknuðum ekki fyrr en um hádegið en þá dirfum við okkur strax af stað og löbbuðum upp á Eyjuna í Ásbyrgi. Eftir það pökkuðum við dótinu saman og héldum af stað.Við fórum vestari leiðina við Dettifoss og stoppuðum í Hljóðaklettum og Hólmatungu og vá hvað það er fallegt þarna í Jökulsárgljúfursþjóðgarðinum !!! Við stoppuðum svo líka og skoðuðum Dettifoss og maður varð ekki fyrir vonbrigðum þar :D Það tók okkur 4-5 tíma að keyra þennan 70 kílómetra kafla í gegnum þjóðgarðinn á þeim versta vegi sem ég hef nokkurn tímann reynt að keyra. Þessi margra klukkustunda hristingur var samt alveg þess virði :D
Seint um kvöldið komum við svo að Mývatni og tjölduðum þar í Reykjahlíð. Tjaldstæðið var alveg pakkað en við fundum okkur fínt pláss alveg við bakkann og með þessu þvílíka útsýni yfir vatnið :Þ
Dagur 7 Mývatn - Hólar
Ég vaknaði um 8 leytið alveg í steik, það var svooooo heitt í tjaldinu. Ég skellti mér í bikinítopp og buxur og fór út að læra tölfræði (eðlilegt :S :D) Svo þegar Orri loks vaknaði skelltum við okkur á kaffihús og svo í sund .... mmmm alveg steikjandi sól og útlandahiti :D Við fjárfestum svo í sólarvörn áður en við héldum af stað upp á Kröflu en það var nú reyndar aðeins of seint fyrir næpuna mig : Þ Útsýnið af Kröflu var rosalega fallegt og alveg þess virði að þramma þarna upp kófsveittur. Við fórum svo til baka á tjaldstæðið og hentum öllu inn í bíl og keyrðum næst að Hverfjalli þar sem við tókum aðra maraþonfjallgönguna. Hverfjall er risa sprengigígur, við löbbuðum upp og gengum svo hringinn með gígbarminum. Þegar við komum niður skelltum við okkur á kaffihús sem var í fjósi, maður sá bara beljur hinum megin við glervegg.
Planið var að kíkja svo í Dimmuborgir en við vorum bara alveg búin á því svo við bara brunuðum norður á Akureyri. Við vorum að halda í vonina að það væru kannski e-r miðar eftir á Emilíönu Torrini tónleikana en það var algjörlega uppselt. Við ákváðum þá bara að halda áfram og á endanum keyrðum við alla leið á Hóla í Hjaltadal. Veðrið var ekkert spes, bara þoka og þoka :S en Hólar standa samt alltaf fyrir sínu :D
Dagur 8 Hólar - Reykjavík
Þegar við vöknuðum þá áttuðum við okkur á því að við áttum ekkert að borða, matarúrvalið á Hólum var ansi lélegt svo við pökkuðum bara saman og keyrðum á Sauðárkrók. Þar hittum við á frábært bakarí. Þegar við ætluðum svo að keyra af stað þá var bíllinn rafmagnslaus :S Orri kraftakall fór út og ýtti bílnum í gang :D Við brunuðum í Varmahlíð og fórum í sund þar og keyrðum svo aðeins til baka og kíktum á Hrefnu systur hans Orra sem er að vinna á sveitabæ þarna rétt hjá. Planið var næst að keyra í Borgarfjörðinn og gista þar einhvers staðar í nágrenni Baulu en við vorum bara orðin þreytt á tjaldlífinu og brunuðum því heim í Reykjavík til að eiga einn frídag heima :D
Þetta var bókstaflega frábær ferð í einu og öllu. Ótrúlegt hvað það er mikið fallegt að sjá á Íslandi sem maður hafði ekki hugmynd um að væri til !!!
Ég ætlaði mér nú að setja myndir inn með en tölvan mín er enn í viðgerð svo ég næ ekki myndunum af kortinu : / Ég bæti þeim bara inn seinna :D
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

No hay comentarios.:
Publicar un comentario