Vá ég sit sko
sveitt hérna yfir tölvunni að reyna að læra eitthvað á þetta blogspot dót og eins og glöggir lesendur sjá þá hefur mér tekist að setja inn einhverja linka og mér tókst líka að bæta við dálkum og breyta nöfnunum :Þ hinsvegar grunar mig að skaðinn sem ég olli í leiðinni eigi eftir að koma mér um koll :Þ
Ég tók
gleði mína á ný í gær þegar
Philipp næturvörður hérna á Sunnu mætti bara upp úr þurru klst fyrr og spurði hvort ég vildi ekki bara fá að fara fyrr :D Ohhh mín var sko til :) Orri kom og sótti mig og við brunuðum í Fjörðinn og fórum á Súfistann til að taka smá tölfræðisessjón. Alveg ótrílegt hvað honum tekst að láta mig skilja hluti sem ég var sko búin að eyða öllum vetrinum í að reyna að skilja !
En alla veganna eftir stödítímann þá skutlaði ég Orra til Palla því þar var e-ð smá get2gether og ég fór bara heim af því ég var að fara að mæta í vinnuna kl.7:30 í dag.
Þegar ég kom heim ætlaði ég nú bara að vera súperlöt og hanga í sófanum og horfa á imbann .... en það var bara ekkert í sjónvarpinu :S svoooo ég gerði bara alveg þveröfugt og byrjaði bara að pakka fyrir ferðalagið.
Í lok kvöldsins var ég svo búin að pakka að mestu leyti, þvo og brjóta saman allan þvott sem við þurfum á ferðinni og svo var ég svo súperdugleg að ég tók bílinn í gegn !!!!
Þeir sem vita e-ð um bílinn okkar vita það að hann er aldrei
HREINN ! En vá ég réðst bara á innréttinguna með vatn að vopni og þurrkaði af öllu og þreif og fann svo e-ð svona innréttingabón eða glans eða hvað sem það var og bar á allt og ryksugaði svo bílinn og núna er hann svoooo
FÍNN :D
Jæja það er bara ferðalag á morgun og ég get ekki beðið :Þ svo erfitt að vera að vinna þegar maður veit að maður er bara alveg að fara í
FRÍ :D
Hérna ætlum við að gista fyrstu nóttina, í Skaftafelli
Ætlum svo að ganga, annað hvort bara á morgun eða eftir að við vöknum á þriðjudaginn og kíkja á Svartafoss og fleira þarna í kring :D

Ohh ég er farin að hlakka svo til, jæja ég ætla að fara að ljúka þessari færslu, ég er örugglega búin að vera meira en hálftíma að skrifa þetta milli þess sem ég tékka fólk inn, baka brauð og svara í símann :Þ Sjáumst seinna :D
6 comentarios:
Góða ferð!!! Við verðum svo að reyna að kíkja í sunda saman áður en ég fer út... verðið þið ekki örugglega komin heim áður? Gaman að sjá allt í einu svona fullt af myndum, þú verður svo að setja inn nóg af myndum úr ferðinni!
Ciao bella :*
hæ sæta jújú ég verð komin heim áður en þið farið svo við skellum okkur saman þá :D
Jæja loksins er ég búin að finna út úr því að skilja eftir comment hérna hjá þér :o/ Ekki alveg að standa mig í þessu bloggdóti hérna ;o) En ég vona að þið hafið það alveg súper næs í ferðalaginu ykkar. Góða ferð :o)
hehe já þetta er tækniundur þetta bloggdót ;) Stefnum á að reyna að hittast í ágúst áður en skólinn byrjar aftur, þætti svo gaman að hitta þig og kíkja bara á kaffihús eða eitthvað :D
Já endilega, er svo til í það :o)
Hæ Erla heiti ég og er vinkona Evu! :) Ég ætlaði bara að óska þér góða ferð.. ég er sjálf að fara í fjagra daga gönguferð í Héðinsfjörðinn.. verður bara gaman.
Publicar un comentario